|
|
|
Ég átti leið austur fyrir fjall um helgina og varð hugsað til ykkar feðga þegar ég keyrði gegnum Selfoss á sunnudaginn. Kunni varla við að koma við í þessu raðhúsi á vesturbakkanum þó mig hálf langaði til að heilsa og spyrja frétta. Jæja, kannske gefst annað tækifæri seinna í sumar.
Kær kveðja
Salome
Salome |
06.26.08 - 11:36 am | #
|
|
Það hefði verið alveg velkomið að banka upp á...við vorum heima, það ég best man..þá bara seinna!
Erlingur |
06.26.08 - 1:12 pm | #
|
|
Sæll Erlingur
Ég rakst fyrir tilviljun um daginn á að bæði Hannes Hafstein og Andrés Björnsson ortu um heilagan Þorlák og áfengi, í samhengi. Máske hefurðu af því gagn, en í það minnsta gaman, ætla ég.
Gunnar Marel |
Homepage |
06.26.08 - 5:24 pm | #
|
|
Því gæti ég trúað. Þessa stundina er ég uppteknari af því að Björgvinjarbiskup sendir Skálholtsbiskupi hálfa lest af bjór að gjöf, árið 1338, svona með "fyrirgefðu hvað þetta er lítið" tón. Hver hefur síðan sent vini sínum fimm hundrað lítra tunnur af bjór?
Erlingur |
06.26.08 - 5:48 pm | #
|
|
Leiðrétting: Það var 1308 og Árni biskup Helgason sem fær bjórinn "bidiande at þer firilitid ei þessa sending. þui at annann tima skal vm betra þægar gud lofar"
Erlingur |
06.26.08 - 6:00 pm | #
|
|
Commenting by HaloScan
|