Gravatar Ég verð að viðurkenna að ég er að sumu leyti ósammála þér varðandi umferðina. Ég fer sjaldnar austur fyrir fjall en efni standa til, vegna mikillar umferðar aldraðra sumarbústaðaeigenda á leið austur í Grímsnes og bíð þess í ofvæni að vegurinn verði tvöfaldaður.
Hinu atriðinu er ég meira sammála. Það er stundum gert óþarflega mikið úr dauðanum á kostnað minningarinnar. Ánægjuleg undantekning var útför eins kollega þíns og kennara míns sem dó í vor, að útför hans var óvenju létt, en um leið hátíðleg minningar- og samverustund (Franz Gíslason).
Sjálf hefi ég fyrir löngu óskað eftir léttri jarðarför með ósk um spilun á Pink Floyd og öðru skemmtilegu í stað útfararsálma, en þó með þátttöku skemmtilegs prests.




Name:

Email:

URL:

Comment:  ? 

 

Commenting by HaloScan