Mér er sagt að ég sé gamaldags. Þannig er að ég hef haldið í þá hefð að setja ekki upp neitt jólaskraut (nema rautt kerti á eldhúsborðið) fyrr en fyrsta sunnudag í aðventu og fyrir það (og fleira reyndar) hef ég fengið þann heiður að teljast gamaldags. En í gær brá ég alvarlega út af vananum og setti upp ljóshring frá IKEA í stofugluggan heilli viku of snemma og ekki nóg með það, þar með brá ég út af öðrum vana og er laus við sjö-arma gyðingaljósið sem hefur verið þarna undanfarin jól.




Name:

Email:

URL:

Comment:  ? 

 

Commenting by HaloScan