|
|
|
Ég er mikill aðdáandi sænskra krimma, les Mankell þegar ég næ í hann enda notaleg skemmtun að liggja í rúminu og hverfa inn í sympatískt sænskt löggulíf. En hvað heldurðu að ég sé að lesa núna nema Eric Fromm, Listin að elska, mjög gaman, ég skil ekki hvernig ég hef komist hjá því að lesa þetta áður. Og svo er ég að hugsa um að klára Arnald, mér finnst það eiginlega vera skyldulesning að lesa hann, ég á eftir tvær bækur eftir hann. |
|
|
|
|
Commenting by HaloScan |