|
|
|
Sko ! Sem þriggja barna móðir með mikla reynslu af brjóstagöf verð ég að upplýsa þig að það er einstakt sambsand sem myndast milli móður og barns við brjóstagjöf. Þetta er eitthvað sem er ekki hægt að lýsa. Vissulega er þetta líffræði en af hverju ætti hún að vera erfið ?. veit ekki af hveju konur ættu að vera þrettar við brjóstagjöf. Þreytan líklega vegna minni svefns. Vildi óska að karlmenn gætu upplifað að ganga með og brjóstfæða börn.Þetta er dásamleg reynsla sem er eitt að því fáa sem við höfum umfrsm ykkur.
Arafat |
Homepage |
04.25.07 - 2:17 pm | #
|
|
Það er gott að þér finnst það og þú ert bara heppin. En það eru til konur sem er sagt að þetta eigi að vera svona en svo gerist það bara ekki og þær fá hræðilegt samviskubit yfir að líða svona og fionnst þær ekki alvöru mömmur..af því þetta hefur verið hafið svo upp til skýjanna meðan þær gengu með!
Erlingur |
Homepage |
04.25.07 - 2:37 pm | #
|
|
ég veit það ekki, ég á tvær stelpur og veit min skerf af brjóstagjöf, mér finnst þetta bara blaður um sérstakt samband osf. mér fannst þetta bara besta og einfaldasta aðferð, ávallt tilbúið og ekkert næturbrölt fram í eldhús til að blanda í pela.
svo er hitt, eru foreldrar sem ættleiða börn verri, af því að ekki rennur þeirra eigin blóð í gegnum æðar barnsins? eða af því að konan hafi ekki gengið með barnið? varla! mér finnst það ætti bara að leyfa þessar staðgenglismæður.
lorýa |
04.26.07 - 7:21 am | #
|
|
Ég skil reyndar ekki hversvegna þarf að taka afstöðu og leyfa eða banna þessar staðgöngumæður. Hafa ættleiðingar ekki alltaf verið til, er þetta nokkuð öðruvísi nema að viðkomandi eignast barn sem er velkomið.
Þetta með sérstakt samband móður og barns sem hún gengur með hefur mér sýnst meira vera tilfinningasemi móðurinnar en upplifun barnsins og góð sem slík, notaleg tilfinning sem gerir vökunætur bærilegar.
Salome |
04.27.07 - 9:44 pm | #
|
|
Commenting by HaloScan
|