Gravatar Sæll Erlingur og gleðilegt ár og takk fyrir öll gömlu í sænska. Jú, mikið rétt, það er búið að opna kjólaverslun í íbúðinni þinni gömlu. Nú er gamla svefnherbergið þitt fullt af konum að máta kjóla. Hver hefði nú trúað því?! Herbergið hans Andra er lokað fyrir gestum og gangandi.
Lukka er ekki enn búin að jafna sig á brotthvarfi loðnu vina sinna og er alltaf að gá að þeim. Reyndar fann hún lítinn loðin (ó)vin inni í íbúðinni okkar um daginn sem ég var auðvitað ánægð með að hún skyldi ná og hrósaði henni óspart.
Endilega komdu og kíktu í kjólabúðina, svona upp á grínið. Opið alla föstudaga frá 14-19 og laugardaga frá 11-14. Það væri gaman að sjá þig.
Bestu kveðjur úr sænska.
Ps. búið að vera mikið stuð í sambandi við bílastæða og brekkumál eftir áramótin en það er efni í annan pistil. Spurning hvort að það væri einhvern tímann kaffi á könnunni hjá þér?


Gravatar Ég á alltaf kaffi á könnunni og hefði bara gaman af því að þú litir inn. Oftast á daginn eftir fjögur og svo á kvöldin. Hafðu bara Lukku með ef hún saknar félaganna.




Name:

Email:

URL:

Comment:  ? 

 

Commenting by HaloScan