|
|
|
Sumarið 1997 vann ég í heimilishjálp á Selfossi og var meðal annars hjá konu á tíræðisaldri sem bjó þarna í Sænska húsinu. Nú get ég alls ekki munað hvort hún var uppi eða niðri, til hægri eða vinstri, minnir að hún hafi verið uppi, ég man ekki einu sinni hvað hún hét og var hún þó góð vinkona ömmu minnar. Ferlegt þetta minni stundum, hún hefur ábyggilega haft betra minni en ég. En gætir þú nokkuð hjálpað mér með þessar upplýsingar, ég fer alltaf að reyna að rifja þetta upp þegar ég les skrif þín um Sænska húsið en þetta er alveg strokað út. Sjarmerandi hús, þú átt ábyggilega eftir að sakna þess.
Bidda |
Homepage |
08.09.07 - 7:11 pm | #
|
|
Þetta hefur verið Marta Jónasdóttir saumakona. Hún var komin yfir nírætt þegar hún dó og arfleiddi Austur-Eyjafjallahrepp að íbúðinni, það var á efri hæð til hægri. Ég lenti í því að vera með alla hreppsnefnd Austur-Eyjafjallahrepps að sýna þeim háaloftið.
Erlingur |
Homepage |
08.09.07 - 7:17 pm | #
|
|
Takk fyrir þetta, hreppsnefndin hefur vonandi ekki farið alveg með þig
Bidda |
Homepage |
08.10.07 - 8:13 am | #
|
|
Ekki alveg, þó þeir hafi að vísu reynt að selja minn part af háaloftinu líka.
Erlingur |
Homepage |
08.10.07 - 11:36 am | #
|
|
Commenting by HaloScan
|