|
|
|
Takk aftur fyrir fyrirlesturinn. Þessi málstofa var sannarlega upplifun. Ég kom náttúrulega of seint eins og mín er von og vísa og missti af fyrsta fyrirlestrinum. Skildi ekki alveg fyrirlesturinn um mjaðmagrind kvenna. Þegar ég var að læra líffærafræði áttaði ég mig á því að ein megin ástæðan fyrir því að við lærðum líffærafræði mjaðmagrindarinnar vel var einmitt vegna þáttöku þessa líkamshluta í barnsfæðingum, sem stundum geta orðið vandamál. Ég skil ekki alveg hvað er svona slæmt við að orðin sem lýsa grindinni skuli lýsa þessu hlutverki. Svo kom hún Ingibjörg Jóna, hún er nú ágætur fyrirlesari og veit nú sennilega að jákvæðni og væmni hefur nú hingað til ekki talist til kosta hér í harðbýlinu. Ég hefði viljað heyra meira frá þér, kannske bókin komi út fljótlega og þá get ég lesið mér til um efnið. Hannes er ófyrirleitinn og hressandi. Verst hvað hann hefur heillað marga unga sál undanfarna áratugi. |
|
|
|
|
|
|
|
|
Commenting by HaloScan |