Gravatar Hrikalega fyndin prentvilla - því þetta er öruggleg prentvilla. Takk fyrir eina hláturskast dagsins.


Gravatar Freyja leikur húsmæður í Vesturbænum grátt þessa páska. Í mínu litla skitna Freyjueggi var enginn málsháttur og í þokkabót var eggið vont. Ég ætla að krefjast skaðabóta og heimta ætt sælgæti vegna þess tilfinningalega tjóns sem ég varð fyrir.

Sem betur fer hafði ég föndrað heimagert páskaegg handa heimasætunni sem var með almennilegum sérvöldum málshætti og úr ætu súkkulaði.


Gravatar Þú færð samúðarkveðjur frá mér. Ég klikkaði reyndar á því í gær, en ég er oft með gesti í mat á páskum og hef þá haft þann sið að leita blindandi að málsháttum í málsháttabókinni, skrifa niður á litla miða (ekki blindandi), jafnmarga gestunum og láta svo draga. Miklu öruggara en ruglið í eggjunum. Og kaupa svo bara Valrohna eða eitthvað dásamlega gott súkkulaði til að maula með.


Gravatar Auðvitað á maður ekki að taka þátt í þessu peningaplokki sælgætisframleiðenda og kaupa óæt páskaegg til þess eins að fá málshátt. Það er vanhelgun á súkklaðiáti að bjóða fólki svona útþynnt súkkulíki.

Það væri gáfulegra að kaupa almennilegt egg hjá Sandholtsbakaríi eða Hafliða í Mosfellsbakaríi úr alvöru súkkulaði en þau kosta reyndar eins og hálfan upphaldlegg. Maður gæti líka gert þetta sjálfur ... eða bara farið að ráðum Parísardömunnar.


Gravatar Auðvitað á að fara að mínum ráðum. Ég hef alltaf rétt fyrir mér!


Gravatar Já, þetta eru góð ráð. Það myndi samt draga eitthvað úr spennunni ef ég þyrfti sjálf að velja málshátt fyrir mig. Kannski ætti ég að stofna einhvers konar málsháttafélag fyrir næstu páska.


Gravatar Freyja er ekki ein um prentvillurnar. Upphandlegg átti þetta auðvitað að vera. Ég virðist ekki getað komið þessu orði rétt frá mér á prenti. Er til orð yfir svoleiðis? Eitthvað samsvarndi tungubrjótur?


Gravatar Jesús Kristur Jósefsson. Samsvarandi.


Gravatar Þetta eru bara saklausar og léttvægar prentvillur sem valda ekki tilfinningalegu tjóni eins og málsháttaruglið.


Name:

Email:

URL:

Comment:  ? 

 

Commenting by HaloScan