Eins og staðan er í dag þá efast ég um að Rúnar leyfi Ínu að láta greipar sópa í H&M ... Ég er byrjuð að safna í bauk (því ekki treystir maður bankanum fyrir honum ) til að koma í heimsókn einhvern tímann og vonandi á næsta ári


En Fjóla það er alltaf ódýrt í H&M - er það ekki :D
Ég var að stóla á það - ætlaði bara að gleyma genginu...........:S

Hmm Niederegger marsipan, eins gott að ég gleymi ekki að fara og kaupa svoleiðis..........iiiii eins og það myndi nokkurn tímann gerast. Er búin að plana sunnudaginn BARA í marsipanhúsið þ.a. það verður klárlega sýnishorn með í för til DK hehe.


Hvað er málið með ykkur þarna úr Norðurvangi og Marsipan! Það er ekki einu sinni gott!
En HogM segiði.... Maður verður nú að heimsækja gamla vini, er það ekki?


Jú Ína og Sigga ... teljið ykkur bara trú um að danska krónan sé 10kr


Ina, svo thad se a hreinu ad tha er ekkert marsipan likt Niederegger marzipaninu. Einu sinni smakkad, thu getur ekki hætt!

Anægdur med thig Sigga ad hugsa um stora bro og muna eftir marzipaninu!

En H&M verdur væntanlega heimsott, an nokkurs vafa. Sidan var madur ad panta Kabal-tv med fullt af stødvum og thvi ekkert ur vegi ad hygge sig yfir imbanum i kreppunni!


Bannað að gera grín að marsipanæði fjölskyldunnar. Ég hef reyndar einu sinni gengið svo langt að banna Magga að fá marsipan því honum fannst það ekki alveg eins gott og mér - honum fannst það fínt en ekki geggjað og þá átti hann náttúrulega ekki skilið að fá neitt Niederegger sko

Amm afslappelsi í kreppunni er það besta.


Ég er greinilega eitthvað öðruvísi í fjölskyldunni því mér finnst marsípan alveg hrikalega vont:S En njótið vel
Kv. Rósa frænka.


Óli þú getur komið í Fagranes ca 3. í jólum.....þá eru bara eftir marsipanmolar sem enginn étur

Til lukku með vinnurnar, og að sjá fyrir endann á verkefninu Eyja mín!


heitari umræður um marsipan hef ég sjaldan lesið :op en mitt atkvæði er með marsipani (í hófi þó)

Gott að von er á góðu fólki í heimsókn til ykkar þar sem ég er alls ekki að standa mig!!! verð að bæta úr því áður en þið ákveðið að flytja heim aftur.

Annars panta ég tíma með ykkur um jólin :o) heima um jólin, fátt dásamlegra Eyja mín :o)

Til lukku með atvinnur og gott gengi á lokasprettinum með þessa ritgerð, klárar þetta með sóma eins og þér einni er lagið ;o)

kossar og faðmlög úr eymdinni á Íslandi :op

Kristín


Mér finnst ég eitthvað svo vanrækt?




Name:

Email:

URL:

Comment:  ? 

 

Commenting by HaloScan