|
|
|
A: Ég hef aldrei séð þjarmað að neinum í Kryddsíldinni heldur hefur þetta þvert á móti virkað á mig sem belgingur og sjálfshólsvettvangur.
B: Ég mun, eins og margir aðrir, nota hvert tækifæri sem gefst til að ná eyrum ríkisstjórnar. Ein leiðin er að mæta þar sem við vitum að þau eru að fara að mæta.
Það var aldrei nein ákveðin aðgerðaráætlun að stöðva útsendinguna, það bara gerðist og mér finnst það hreint ágætt. Líklega hefði kryddsíldarhópurinn bara átt að ákveða strax að bjóða frekar hópum sem eru að vinna í því að búa til Nýtt Ísland, heldur en að bjóða hrokagikkunum sem berjast við að halda í gamla brunna Ísland.
Gleðilegt og gott ár!
Kristín |
Homepage |
12.31.08 - 4:24 pm | #
|
|
ja mér sýndist nú Sigmundur Ernir standa sig bara fínt, hann var nú byrjaður að spyrja Ingibjörgu Sólrúnu ansi óþægilegra spurninga þegar hann varð að hætta þar sem það var búið að eyðileggja græjurnar. Og lemja vin minn hann Eyþór hljóðmann.
Ég er bara ekkert ánægð með þetta og lái mér hver sem vill. Mér er sama.
Vælan |
Homepage |
01.01.09 - 10:36 pm | #
|
|
Hmm, þetta með græjurnar virðist nú eitthvað orðum aukið. Alltaf talað um "milljónatjón" en aldrei tilgreint neitt nákvæmar en sundurskornar snúrur. Sem eru varla græjur. En ég var ekki þarna svo ég get svosem ekkert sagt.
Gummi |
Homepage |
01.02.09 - 10:57 am | #
|
|
hmm kannski. Það er örugglega mjög einhliða fréttaflutningur af þessu öllu saman og mér finnst ógeðslegt að sjá aðfarir lögreglu, hef séð myndir sem sýna mjög greinilega piparúðann notaðan á fólk sem er búið að snúa sér við til að fara frá með hendurnar á lofti.
Enda var spurningin hjá mér aðallega það að mér fannst einmitt bara fínt að það væri kannski þarna vettvangur til að grilla aðeins liðið - þar sem allir væru samankomnir, við höfum nú ekki séð marga svoleiðis þætti.
Vælan |
Homepage |
01.02.09 - 11:31 am | #
|
|
Commenting by HaloScan
|