Gravatar Hæ Óskar!

Ég heiti Heiða og er verðandi arkitektúrnemi sem þarf að velja á milli LHÍ og Kunstakademiets Arkitektskole. Mér þætti mjög vænt um að heyra í þér og um reynslu þína af akademíunni. Myndirðu mæla með henni?
Endilega sendu mail

Kær kveðja,
Heiða.


Gravatar Sæl Heiða. Ég öfunda þig af því að standa frammi fyrir þessu vali vegna þess að þú hefur tækifæri til að verða ekki arkítekt. Ég áttaði mig því miður of seint á því að ég hefði aldrei átt að leggja á mig alla þessa vinnu til þess eins að geta teiknað hús sem aldrei verða byggð og talað gáfulega um hluti sem skipta engu máli.

Ég mæli með því að þú lærir eitthvað praktískt eins og lögfræði og haldir þig heima hjá vinum þínum og fjölskyldu.

Gangi þér vel.

Óskar


Gravatar Þetta er fyndið- hver er stóri brandarakarlinn?


Gravatar En fyrst ég er nú mættur hérna, þá get ég alveg eins beðið þig um að afsaka manneskjuna hér að ofan, og beðið þig frekar um að senda mér mail, þar sem ég er ekki með netfangið þitt. Mitt er oskararnorsson@gmail.com

Kveðja,

Óskar


Gravatar ég hef gaman af þessum brandarakarli. Ég hélt fyrst að þetta væri Hirðirinn sjálfur.


Gravatar Já en ókei Barcelona er kúl eða ekki kúl og allt það... og Tommi fílar brandarakalla, en áfram með þetta fullt af spennandi hlutum að gerast hjá þér Óskar minn gerðu okkur vinum og vandamönnum þann greiðar að byrja aftur að skrifa.


Gravatar heyr! heyr!


Gravatar ég er amk búinn að spenna beltið og til í æsandi bloggskrif frá stóra eplinu.

á meðan lesendur síðunnar bíða í ofvæni þá bendi ég á eftirfarandi klassískt myndskeið með gamla góða Moe:
http://www.youtube.com/watch? v=N...feature=related


Gravatar Þessi bloggfærsla er orðin algerlega mauksoðinn Óskar. Ég vil bloggið mitt "al dente".




Name:

Email:

URL:

Comment:  ? 

 

Commenting by HaloScan