stór sekkur belgfylltur

Og ég sem hélt að þú ætlaðir að fara að játa á þig einhverjar krassandi syndir sem við myndum öll taka andköf yfir svona á miðju sumri.


Heyrðu ágæta parísardama! Ég hef ekki komið til Parísar í tuttugu ár og finnst það auðvitað bara gjörsamlega glatað. Mér datt í hug að skreppa í viku um miðjan ágúst. Er það kannski glataður tími fyrir parísarferð?


Annars segir Egill Helgason að kaffibollinn kosti fimmhundruðkall og annað eftir því í París svo kannski fer ég bara frekar til ódýru landanna.


Gravatar Ghh: ég hef ekkert óhugnalegt að játa, sál mín er reyndar svört en þið vitið flestallt um það.
Þórdís: París er náttúrulega orðin viðurstyggilega dýr, en það er þó enn hægt að finna sæmilega ódýr hótel og komast af með sæmilega lítið ef maður lætur ekki eftir sér kampavínsfyllerí á Ritz og vandar sig við val á veitingahúsum og öðrum munaði.
Mér finnst alltaf dásamlega gott að vera hér í ágúst, færri Parísarbúar, meira af fólki að hafa það náðugt. Minni bílaumferð, heitt og gott (svona oftast).
Þið ættuð jafnvel að geta fundið íbúð um miðjan ágúst, tékkaðu á auglýsingum á síðunni minni, það er nú rokna sparnaður.


Gravatar Já, ef kona er gift fávita þá er hún líka fáviti. Punktur. (Og punktur við það líka, innan sviga.)

Þetta er náttúrlega selfölighed dauðans...


Gravatar Á ekki við hið fornkveðja um frúnna og hennar mann ,,líkur sækir líkan heim,,


Gravatar spurt er: er það óréttlátt eða eðlilegt?
Svar: Já.


Gravatar Ég er enn ekki með ákveðna skoðun á þessu. En ég veit að Carla fær hár mín til að rísa af pirringi og ónotum.
Ævar Örn: Ég skil þig þannig að það sé í raun bæði, sem er líklega einmitt vandamálið. Óréttlátt og eðlilegt að setja manneskju og maka hennar í sama hólf.


Gravatar Ég ætla að láta það vera að kommenta á þessa speki að konur fávita hljóti einnig að vera fávitar. Ég gæti sagt eitthvað ljótt.

Hinsvegar vil ég tjá mig um það að ég er nokkuð viss um að tónlistargæði séu ekki endilega það eina sem ræður því hvort tónlist sé spiluð á Rúv eða ekki. Ég held að það sé einmitt mjög eðlilegt og ábyggilega rétt metið að Rúv telji hlustendur sína hafa áhuga á því að heyra söng Bruni og geta lagt á það dóm hvort hún hafi eitthvað með það að gera að gefa út plötu. Það er alveg eitthvað sem maður getur talað um við flæðilínuna...


Gravatar Það er ekki það sama, fáviti og fáviti.

Eiginkona fávita er kannski fáviti á annan hátt en fávitinn sem hún er gift. Maður fyrirgefur sumum fávitaskapinn, en öðrum ekki.


Gravatar Unnur: Þín saga er allt öðruvísi. Hún Carla vissi nokkuð mikið um Nicolas áður en hún féll fyrir honum.
Auðvitað sló ég þessu fram þar sem mér fannst hálfóþægilegt hvað ég þoli hana illa út af manninum hennar.
Elías, góður punktur.




Name:

Email:

URL:

Comment:  ? 

 

Commenting by HaloScan