Í minni sveit sýður maður hrísgrjón svipað og venjulega, nema í minna vatni. Þegar grjónin eiga nokkrar mínútur í að vera fullsoðin (og vatnið helst því sem næst soðið upp) skellir maður rúsínum út í og slatta af mjólk. Lætur suðuna koma upp og malla í ca. 5 mínútur í mjólkinni.

En ég er náttúrulega ekki efnaverkfræðingur...


Gravatar nákvæmlega eins og ég gerði þetta... nema ég sleppti rúsínunum... held að það að ég hafi bætt útí smá (miklu) smjöri hafi gert áhorfendur hissa.... en eins og ég hef margoft sagt, þá er smjör alveg rosalega gott fyrir heilann það eru sko fitusýrurnar í smjörinu sem eru svo góðar fyrir heilann...


Gravatar Ég er nú ekki úr sveit og hrísgrjónagrautur var aldrei eldaður á mínu heimili í efra Breiðholti. En ef þig aftur á móti vantar uppskrift að ýsu í örbylgjuofni get ég aðstoðað......


Gravatar væri alveg til í ýsu-uppskriftina... en það er bara svo erfitt að fá almennilega ýsu hér í DK... spurning um að reyna að fá m og p að taka með sér ýsu að heimann og halda fiskiveislu um páskana...


Gravatar http://www.simnet.is/ gunnsasjalf...rjonagraut.html

Ja, ég elda nú hrísgrjónagraut um það bil eftir þessari aðferð og Helga Sig er nokkurnvegin á sömu skoðun. Þetta með smjörið er náttúrlega bara snobb




Name:

Email:

URL:

Comment:  ? 

 

Commenting by HaloScan