Að gefnu tilefni vil ég benda lesendum á að lesa notkunarleiðbeiningar á hreingerningavörunum sem þeir nota. Blandið efnin eftir leiðbeiningum sem gefnar eru upp.


Gravatar ég er ný byrjuð með tilraun á mínu heimili...sem gengur útá að horfa á mína litlu veröld sem eitt vistkerfi (ecosystem)... kaupi bara hreinlætisvörur með þartilgerðum umhverfis merkjum og nota eins lítið og ég get af þeim (mér reynist tildæmis best að vera dugleg að skafa vatnið eða þurka svo ég þarf ekki að hafa áhyggjur af kalkinu)... það gengur ekki eins vel að hafa stjórn á snyrtivörufíkninni minni... þyrfti að komast í einhverskonar snyrtivöru-afvötnun... en eitt skref í einu og bráðum verða það bara tvö krem sem ég maka á mig eftir sturtuna ... svo er náttúrulega svo margt annað sem þarf að hafa í huga svo mitt litla vistkerfi geti talist umhverfisvænt umhverfi en þetta mjakast allt í rétta átt skal ég segja ykkur...


Gravatar gaman að geta fylgst með upphafinu á nýnju deildinni hjá neytendasamtökunum...


Gravatar Þess má geta að ég er núna, að hluta til inspíreraður af umhverfisvænum húsráðum frú Elínar, að prófa að afkalka sturtuhausinn minn í kókglasi.

Teku undir með Steinunni að það að skafa sturtuklefann jafnóðum (með góðri sköfu - mjög mikilvægt) hefur lygilega mikið að segja um kalkuppsöfnun. En sítrónunni verður kannski brugðið á loft í framtíðinni.


Gravatar Viðbót: Kókið var ekki að standa undir væntingum sem kalkleysir.

Ég neyddist til að grípa til róttækari aðgerða og draga fram tannstöngul.

Mikil vonbrigði, en þó umhverfisvæn lausn.




Name:

Email:

URL:

Comment:  ? 

 

Commenting by HaloScan