Þú bjóst til rúllu úr afgöngum og við keyptum laxapaté og kex. Frábær nestisferð!


...þessi rólega týpa? Hlakka til að hitta nýja og „rólega“ Steinunni. Lýsingin í færslunni er dæmigerð fyrir mjög rólegar týpur eða...


ég er alltaf svo sallaróleg!!!


Hey kommon ég var í rosalega lélegum sandölum með þunnum sólum - áts!
En annars mun ég minnast þín á hverjum degi sem ég er að vinna á spítalanum. Ég fann út úr því þegar ég leit þar út um gluggann að kollegið mitt og þessi blessuðu kolonihús eru alveg hlið við hlið


Já en eins og við Rökkvi segjum...lífið hér í Danmörku verður ekki eins án þín...

En ég er búin að ákveða það að þar sem ævintýradrottningin er á förum , þá verð ég bara að búa sjálf til ævintýri... og ekki hef ég nú haft lærimeistara af verri endanum....


hahahahahahaha.... mér finnst of fyndið að við höfum þá eiginlega verið komin á leiðarenda þegar við snérum við.... hahahahahahahahahahah


Til hamingju með lokin Steinunn mín!

Held samt að þú eigir eftir að sakna skólans... t.d. man ég þegar ég skrópaði í tíma kl.8 um morguninn og við átum ís í morgunmat með upphitaðri súkkulaðisósu og horfðum á Simspsons í kökken 4. Mmmm student´s life, gotta love it! ...nema náttúrlega þegar maður er í prófum :/

Annars hljómar þessi nestisferð ykkar Elínar dáldið skondin. Hefði alveg verið til í að hjálpa ykkur með hvítvínið og hænurnar.


já það hafa verið svo margar svona "stolnar" stundir á þessum stúdentsárum mínum... er alveg búin að vera temmilega óabyrg í allri ábyrgðinni og þeirra mun ég sakna... ætla þó að gera það að lífsmottói að halda áfram að vera temmilega óábyrg í allri ábyrgðinni...

Niðurstaðan er kannski sú að það sem ég hef lært á námsárunum er kannski 60% úr hinum eiginlega skóla... restina af "menntuninni" er ekki hægt að votta, setja á plagg og hengja uppá vegg... gaman að reyna að fá iðnaðarráðherra til að kvitta undir gráðu í "stúdentalífi með stæl"




Name:

Email:

URL:

Comment:  ? 

 

Commenting by HaloScan