þú ert deli


Piff...

Ég var mætt um daginn kl. 7:20 í vinnuna og ætlaði aldeilis að taka til hendinni enda beið mín samningur á þýsku en nei ég stimplaði mig út en ekki inn... Hverjum dettur í hug að hafa stimpilklukkuna á finnsku? Mjög skemmtilegar samræður í hádeginu með yfirmanninum - "Hei, by the way ég er ekki algjör njóli en ég stimplaði mig út í morgun en ekki inn..." og ég mun þurfa að eiga þetta samtal aftur þegar hann fyrir yfir tímana sem ég hef unnið...sweet

og já ég hefði líka hringt í pabba minn...


Haha! ...þetta er næstum eins gaman og hjá mér áður en ég fékk kvöld og morgun aðganginn minn í vinnuni... ég gat alveg verið inni á rannsóknarstofunni á kvöldinn, en ef ég fór út - þá komst ég ekki inn aftur... eins gott fyrir mann að vera með partýblöðru þá!


haha Þórunn mín..þetta nákvæmlega sama kom fyrir mig daginn hér uppí Kaupþingi! Ég ætlaði svo að vera svo dugleg og mæta snemma og setti kerfið í gang og enginn var hér! Það var alveg hræðilegt þarna fyrst en svo sem betur fer reddaðist þegar yfirmennirnir mættu á svæðið, mjög gaman. En þvílíkur hávaði. ég var með suð í eyrunum allan daginn!




Name:

Email:

URL:

Comment:  ? 

 

Commenting by HaloScan