Gravatar "Bruni, jafnvel langvarandi bruni, hefur aldrei, svo ég viti fellt stálgrindarháhýsi."

Þú verður að ræða þetta aðeins við Gabbler sem hefur stúderað þessi mál. Raunin er sú að þegar háhýsið í Madrid brann stóð steypuvirkið eftir, stálgrindin var í rúst, byggingin hékk á steypuvirkinu. Á Íslandi hafa stálgrindarhús (fjós) hrunið vegna bruna. Það er einfaldlega mýta að stálgrindarhús geti ekki hrunið vegna bruna. Mýta sem lifir vegna þess að við höfum svo fá tilvik lík þessu.

En það var það ekki bara bruni sem felldi tvíburaturnana, heldur hafði árekstur flugvélanna og sprenginin töluvert að segja með hvernig þetta endaði. Höggið olli því að brunavörn fór af stálbitunum. Brunavörninni var sprautað á stálbitana, hún var stökk og brotnaði af við þetta mikla högg.

"en það voru víst engir slökkviliðsmenn í henni þannig að varla hefur hann átt við það"

Átti hann ekki einfaldlega við að best væri að hætta að reyna að bjarga byggingunni? Mér finnst það einfaldasta skýringin. Voru ekki slökkviliðsmenn fyrir utan að reyna að slökkva eldana? Voru þeir ekki í vissri hættu? Var ekki um að gera að taka enga áhættu í kjölfar þess að þrjúþúsund manns höfðu látist?

Ég skil ekki þennan þankagang. Þetta mál hefur verið rannsakað allverulega og á netinu er hægt að finna ítarlegar og vandaðar skýrslur.

En það verður aldrei hægt að afsanna allar samsæriskenningar, því samsæriskenningar eru lífseigur andskoti.


Gravatar Ég tel mig ekki þess umkominn að standa á því fastar en fótunum að sprengiefni hafi komið við sögu. Ef við göngum útfrá því að þau hafi ekki gert það, og jafnvel að opinbera sagan sé í aðalatriðum sönn, þá má ennfremur, eins og þú segir búast við því að seint muni allir fallast á það. Ég hef samt efasemdir um þetta (eins og ýmislegt annað) og finnst spekúlasjónir í kring um atburðarásina akkúrat þennan dag kannski ekki vera aðalatriðið, heldur frekar pólitískt samhengi, bæði í aðdraganda og eftirmálum. Það er svosem efni í aðra umræðu.


Gravatar Eins og Matti bendir á var það ekki einfaldur bruni sem felldi WTC.

Mér finnst rétt að endurtaka það sem ég sagði í svari við síðustu færslu um hve vafasamt mér virðist að WTC7 hafi verið felld með sprengiefni eftir 7 tíma bruna.

Á hvaða tíma átti að koma sprengiefninu fyrir? Var enginn í húsinu? Það er ekki verið að tala um að parkera trukk með sprengju í skottinu undir byggingunni. Það er verið að tala um að koma fyrir sprengiefni á hverri hæð og búnaði til að koma controlled sprengingu af stað. Svo að búnaðurinn þoli eld án þess að það komi niður á afköstum.

Já, eða kannski óðu þeir bara inn í bygginguna meðan hún logaði, að sjálfsögðu í dulargervi slökkviliðsmanna, og komu sprengjunum fyrir.

Sorry, það er um að gera að setja fram spurningar en þetta eru stórfelldar fullyrðingar byggðar á kviksyndi sýnist mér.

Afhverju virðist Bandaríkjastjórn ekki áhugasamari um að rannsaka þetta allt og komast að ótvíræðum svörum? Mér sýnist að þeim henti bara ágætlega þær ályktanir og niðurstöður sem hafa verið dregnar af ódæðisverkunum hvort sem þær eru réttar eða ekki. Hví að fikta í einhverju sem er akkúrat eins og þú vilt hafa það?


Gravatar Ég mæli með 911myths.com. Þarna eru meðal annars tvö myndbönd sem sýna að WTC7 var alelda:


Gravatar hérna

Fyrst ég er farinn að vísa á myndbönd þá verð ég að benda ykkur á þetta myndband sem sýnir að Boeing-flugvélin flaug á Pentagon.


Gravatar Ég er mest hissa að menn hafi efast um að þota hafi lent á Pentagon og notað því til sönnunar myndir sem auðkennilegir og risastórir hlutir úr þotuhreyflum sáust greinilega á...


Gravatar Nei heyrðu mig nú. Ég hef verið að skoða þessar "debunk" síður og er síður en svo hreyfur. Til dæmis wtc7 skýringarnar: Að byggingin hafi verið "alelda" og blablabla. Byggingin hrynur eins og spilaborg út af eldi? Í frjálsu falli? Og það fyrsta sem hrynur er kofinn efst á byggingunni? Það fyrsta sem ætti að koma í hugann er eyðilegging undir stjórn, ekki "hún hrundi undan eldi". Þetta er bara of fáránlegt. Nei, þessi eldakenning er bara ekki a


Gravatar Ekki bara eldur.


Boyle: ...on the north and east side of 7 it didn’t look like there was any damage at all, but then you looked on the south side of 7 there had to be a hole 20 stories tall in the building, with fire on several floors. Debris was falling down on the building and it didn’t look good.

Firehouse: When you looked at the south side, how close were you to the base of that side?

Boyle: I was standing right next to the building, probably right next to it.

Firehouse: When you had fire on the 20 floors, was it in one window or many?

Boyle: There was a huge gaping hole and it was scattered throughout there. It was a huge hole. I would say it was probably about a third of it, right in the middle of it. And so after Visconti came down and said nobody goes in 7, we said all right, we’ll head back to the command post. We lost touch with him. I never saw him again that day.


Gravatar Hjalti, ef seinna myndbandið sem þú vísar á er það sem ég hef séð, þá sést þotan sjálf hvergi.


Gravatar Seinna myndbandið sýnir hvernig skemmdir á ljósastaurum og rafölum fyrir framan Pentagon eru í fullu samræmi við árekstur farþegaþotu. Einnig er þarna hvernig myndbandið óskýra úr öryggishliðinu stemmir við að þota flaug á bygginguna.


Gravatar Nei, Vésteinn, þetta er ekki það myndband, en í því myndbandi sést þotan reyndar í einum ramma (eins og sést í myndbandinu sem ég vísaði á).


Gravatar Ég er hræddur um að ég verði að geyma það til morguns að sjá myndbandið; ég get ekki séð það úr tölvunni sem ég er í.


Gravatar Er að skoða "debunk" síður. Fann eina í gegnum http://video.google.com/videopla...05403046& q=WTC7
Þar er sjálfur Chomsky aðalmaðurinn.
http://representativepress.org/
Ég virði Chomsky mikið, en að láta það skipta einhverju væri fyrir mér ad-hominem. Því miður finnst mér þetta missa algerlega marks. Sama hvernig ég horfi á þetta http://video.google.com/videopla...66071205& q=WTC7
eða hvaða útgáfu sem til er af þessu hruni get ég ekki keypt þessa eldtilgátu.
http://video.google.com/videopla...07499063& q=WTC7


Gravatar Svo er bara svo margt undarlegt við þessa atburði. T.d.
http://globalresearch.ca/index.p...& articleId=3194

Það gengur heldur ekki að vera eilíft að nota skítkast á þá sem þykir skýringarnar eitthvað misjafnar. Ég er hundleiður á þessu "samsæriskenninga" bulli. Ég hef enga kenningu um þetta; samsæris eða eitthvað annað. Mér finnst bara margt ekki standast í þessum opinberu kenningum. Þeim sem líður betur geta sossum notað einhver fúkyrði yfir þá sem dirfast að efa hinn heilaga sannleik býst ég við.


Gravatar Það er ekkert skítkast fólgið í því að kalla kenningu um samsæri samsæriskenningu!


Gravatar Svo ég endurtaki mig: Ég hef ENGA KENNINGU um hvað gerðist; enga. OK?
Eina kenningin sem er í gangi hér er hin opinbera. Reyndar væri nú athyglisvert að meta hana vísindalega; stenst hún? Það væri gaman að skoða það með líkindareikningi.


Gravatar Það að halda því fram að eitthvað sé gruggugt við "opinberu skýringuna" er kenning.

Það fyrsta sem ætti að koma í hugann er eyðilegging undir stjórn, ekki "hún hrundi undan eldi". Þetta er bara of fáránlegt. Nei, þessi eldakenning er bara ekki a
þarna geri ég ráð fyrir að vanti "að ganga upp".

Þessar efasemdir eru kenning í sjálfu sér.

Samsæriskenning, eitthvað annað en bruni olli hruni byggingar nr. 7

Það þýðir ekkert að skýla sér bak við það að maður hefur ekkert líklegra í höndunum, það að afneita "opinberu skýringunni" er kenning í sjálfu sér, því afneitunin felur það í sér að um sér að ræða samsæri.


Gravatar Þetta er svo fáránlegt. "Skýla sér bakvið", "afneita...". Væntanlega að skýla því að ég sé veruleikafirrtur "samsæriskenninganötter". Skítkast. Argumentum ad nauseam. Eða í raun (svo ég sletti meiri latínu) reductio ad nötters "kenningarnar eru vinsælar hjá nötterum, þar með eru þær rangar..." stimplun...
"commission report" hefur meir að segja enga skýringu á því hversvegna bygging 7 hrundi. Þetta er engin kenning. Ég er ekki að "afneita" neinu nema fiskisögu um að húseldur bræði stálgrind og felli skýjakljúfa. Að þú skulir nota orðið "afneitun", Afneita kristi...


Gravatar Fullyrðing á borð við þessa "Ég er ekki samsærissinni, en ég held að opinberu skýringarnar séu ósannar" er fullkomin þversögn, það að opinberar skýringar eru ósannar felur í sér að í gangi er samsæri.

Annars er þetta tilgangslaus þræta, það er ekkert dularfullt eða óútskýrt varðandi hrun bygginar nr. 7.


Gravatar Það þýðir ekkert að tala við þig herra Matti. Þú lest ekki það sem maður skrifar.
Annars sendi vinur minn mér þetta. Bygging tekin niður. Fann enga af háhýsi sem fellur svona vegna bruna, enda er slík mynd ekki til.
http://kvikmynd.is/video.asp?lan...fset=81& id=2431


Gravatar ceasars hotel and casino ceasars hotel and casino ceasars hotel and casino // marriott resort and stellaris casino marriott resort and stellaris casino marriott resort and stellaris casino




Name:

Email:

URL:

Comment:  ? 

 

Commenting by HaloScan